Þjónusta Útilegumannsins
Útilegumaðurinn rekur þjónustudeild og verkstæði samhliða versluninni þar sem breytingar og annað tengt þjónustu við okkar vöru fer fram. Við leggjum ríka áherslu á að veita viðskiptavinum okkar trausta og góða þjónustu, þar sem skjót og örugg vinnubrögð eru í fyrirrúmi. Hjá okkur færð þú faglega ráðgjöf við kaup á þeim ýmsu vörumerkjum sem Útilegumaðurinn býður uppá.
Ábyrgðir
Öllum ferðavögnum frá Útilegumanninum fylgir tveggja ára ábyrgð og helstu samstarfsaðilar eru:
Forest River Inc. (Rockwood) er einn af allra stærstu framleiðendum af fellihýsum í Bandaríkjunum. Með fjöldaframleiðslu tekst þeim að færa þér fullkomnari vagna á betra verði án þess að rýra gæði.
Polar hjólhýsin eru framleidd af finnsk-sænsku samsteypunni SoliferPolar AB sem hafa framleitt hjólhýsi frá árinu 1964. Þau henta einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður. Polar hjólhýsin eru þekkt sem mjög vönduð framleiðsla og framúrskarandi vel einangruð í Skandinavískum hágæðaflokki.
CGI Camping (Cabanon) er franskt fyrirtæki sem hefur leiðandi markaðsstöðu í Evrópu hvað varðar hönnun og framleiðslu á tjaldvögnum, fortjöldum og sólskyggnum svo fátt eitt sé nefnt. Strangt gæðaeftirlit er á vörum CGI Camping og tryggir það bæði gæði og endingu þeirra.
Pyramid Products Ltd. er breskt fyrirtæki sem hefur leiðandi markaðsstöðu í Evrópu og skartar einni af breiðustu vörulínum innan ferðaiðnaðinum.
Lán
Við vísum á samstarfsaðilana okkar SP og Íslandsbanka.
