Regal sjóbátar - veldu tegund

Útilegumaðurinn hefur gerst umboðsaðili fyrir hina heimsþekktu Regal hrað- og sportbáta sem framleiddir hafa verið í Bandaríkjunum frá árinu 1968 við frábæran orðstír.  Á síðustu 3 árum hefur Regal hlotið alls 5 J.D. Power neytendaverðlaun og státar af því að vera fyrsti framleiðandi til að vinna 2 verðlaun tvö ár í röð sem er framúrskarandi árangur.

Regal fann upp og hefur einkaleyfi á smíði hins einstaka kjöl “FasTrac” en sú hönnun minnkar mótstöðu mikið og fleytir Regal bátunum af meiri hraða eftir vatnsfletinum. Einnig er sjóhæfni, staðalbúnaður og ekki síst frágangur algjörlega til fyrirmyndar hjá þessum virta bátaframleiðanda.  Regal hefur fengið fjölda verðlauna fyrir bátana sína svo sem J.D. Power & Associates 2006, 2007 og 2008,  og þá eru ótalin CSI verðlaun öll árin 2002 - 2007.

Útilegumaðurinn státar sig af því að selja Regal bátana með innbyggðum VolvoPenta vélum með hældrifi (Sterndrive), sem gera það að verkum að bátarnir ganga mun hraðar, eru mun lágværari og eyða mun minna auk þess sem víbringur er í lágmarki.