Bátar - veldu tegund
Regal sjóbátar
Útilegumaðurinn hefur gerst umboðsaðili fyrir hina heimsþekktu Regal hrað- og sportbáta sem framleiddir hafa verið í Bandaríkjunum frá árinu 1968 við frábæran orðstír. Á síðustu 3 árum hefur Regal hlotið alls 5 J.D. Power neytendaverðlaun og státar af því að vera fyrsti framleiðandi til að vinna 2 verðlaun tvö ár í röð sem er framúrskarandi árangur.
Regal fann upp og hefur einkaleyfi á smíði hins einstaka kjöl “FasTrac” en sú hönnun minnkar mótstöðu mikið og fleytir Regal bátunum af meiri hraða eftir vatnsfletinum. Einnig er sjóhæfni, staðalbúnaður og ekki síst frágangur algjörlega til fyrirmyndar hjá þessum virta bátaframleiðanda. Regal hefur fengið fjölda verðlauna fyrir bátana sína svo sem J.D. Power & Associates 2006, 2007 og 2008, og þá eru ótalin CSI verðlaun öll árin 2002 - 2007.
Útilegumaðurinn státar sig af því að selja Regal bátana með innbyggðum VolvoPenta vélum með hældrifi (Sterndrive), sem gera það að verkum að bátarnir ganga mun hraðar, eru mun lágværari og eyða mun minna auk þess sem víbringur er í lágmarki.
Karnic
Karnic bátarnir frá Kýpur er margverðlaunaðir og hafa getið sér gott orð víða um heim fyrir stöðugleika og góða hönnun. Karnic 2265 er mjög skemmtilegur og hraðskreiður sportveiði bátur, bæði fyrir fiskirí og skotveiði. Þessi bátur er mjög hraðskeiður gengur 41-43 hnúta með 190 hestafla vél. Með hældrifi (Sterndrive) gengur báturinn mun hraðar, er mun lágværari og víbringur er í lágmarki. Vélin er staðsett aftast í bátnum og þar af leiðandi tekur hún ekki pláss á miðju þilfari.
Galia bátar
Galía sportbátarnir eru einstaklega vel hannaðir, mjög sterkbyggðir, stöðugir og hafa yfir mikilli sjóhæfni að ráða. Galía bátarnir eru allir í hönnunarflokki C: og henta því mjög vel til notkunar á bæði vatni og sjó við misjafnar aðstæður. Allir Galía bátarnir eru gerðir fyrir utanborðsmótora og býður Útilegumaðurinn uppá ýmsar stærðir og gerðir.
Galeon snekkjur
Galeon skemmtibátarnir hafa verið framleiddir í tugi ára við frábæran orðstír og slegið í gegn um allan heim. Galeon bátarnir eru mjög vel hannaðir og ríkulega útbúnir, auk þess sem þeir státa af glæsilegu útliti og allur frágangur til fyrirmyndar. Efnisval bátanna er fyrsta flokks og það sést um leið og um borð er komið. Það er leður í sætum, sterkbyggðar mahogany innréttingar, alcantara klædd loft og veggir er gott dæmi um þann metnað sem lagður er í að skapa lúxus andrúmsloft um borð.
Það sem hins vegar mestu máli skiptir er að sjóhæfni þeirra ber af meðal skemmtibáta í þessum flokki, þetta gerir sérstök hönnun og framleiðsla þeirra. Styrkur Galeon og þyngd gefa þessum frábæru bátum mikinn stöðugleika og mikinn ganghraða í þungum sjó Atlantshafsins. Vertu velkominn til okkar í Útilegumanninn þar sem við getum með ánægju kynnt þér betur þessa frábæru báta en verðið á Galeon bátunum er áberandi hagstætt.